• Opið virka daga: 08:00 til 18:00    Sími: 577-5575
  • Afgreiðsla er opin virka daga frá: 08:30 til 16:00 Sími: 577-5575 

SKILMÁLAR ÁS SNJÖLL HEILSA EHF.

Með notkun vefsvæðisins undirgengst þú sem notandi þessar reglur og skilmála.

1. gr. Eigandi síðunnar

Vefsvæðið  (hér eftir „vefsíðan“ er eign ÁS Snjöll heilsa ehf., kt. 700909-0690 (hér eftir „félagið“) sem fer með stjórn vefsíðunnar og vefkerfið Healo (hér eftir „vefkerfið“) er eign Empowered Applications AB (hér eftir „EA” ) sem fer með stjórn vefkerfisins.

2. gr. Lög og reglur

Um notkun á vefkerfinu gilda íslensk lög og stjórnvaldsfyrirmæli eftir því sem við á. Rísi ágreiningur um notkun vefkerfisins eða efni skilmála þessara skal reka dómsmál þess efnis fyrir Héraðsdómi Reykjavíkur.

3. gr. Höfundarréttur og vörumerki

Vörumerki og auðkenni sem sjást á vefsvæðinu eru eign félagsins eða samstarfsaðila. Notendum er með öllu óheimilt að nota merki félagsins án skriflegrar heimildar félagsins. Allt efni á vefsvæðinu nýtur höfundaréttarverndar eða eftir atvikum einkaréttarverndar að því marki sem það er ekki undanskilið slíkri vernd með lögum. Notendum vefkerfisins er með öllu óheimilt að breyta, birta, endurnýta, afrita, gefa út, selja eða veita aðgang að því efni sem finna má á vefsíðunni eða hagnýta sér það með nokkrum öðrum sambærilegum hætti.

Til efnis á vefsvæðinu teljast m.a. áætlanir, myndbönd, skrár, töflur, eyðublöð, gagnagrunnar og hvaðeina annað sem finna má á vefsvæðinu sbr. m.a. 50.gr. Höfundalaga nr. 73/1973.

4. gr. Engin ábyrgð tekin

Allar upplýsingar sem látnar eru í té á vefsíðunni „eins og þær koma fyrir“ án nokkurrar ábyrgðar, beinnar eða óbeinnar. ÁS Snjöll heilsa ehf. ber ekki undir neinum kringumstæðum ábyrgð á nákvæmni eða áreiðanleika þeirra upplýsinga sem finna má á vefsíðunni hvort sem þær frá félaginu sjálfu eða öðrum. ÁS Snjöll heilsa ehf. ber ekki undir neinum kringumstæðum ábyrgð á tapi eða skaða sem rekja má til þess að notandi byggir á upplýsingum sem aflað er á þessari vefsíðu. Það er á ábyrgð notanda að meta nákvæmni,  eða notagildi hvers kyns upplýsinga sem fást á vefsíðunni.

5. gr. Fyrirvari um bótaábyrgð

Áskrifandi sækir og nýtir æfingar Healo á eigin ábyrgð. Áskrifandi fullyrðir með samþykki á skilmálum þessum að honum sé óhætt að stunda æfingar og að honum sé engin sérstök hætta búin af því heilsufarslega. Áskrifandi nýtir æfingar á eigin ábyrgð og firrir félagið allri ábyrgð á hugsanlegum meiðslum, veikindum eða slysum sem kunna að koma fyrir. Félagið ber enga ábyrgð á líkamstjóni áskrifanda nema það verði sannanlega rakið til stórfellds gáleysis starfsmanna félagsins.

ÁS Snjöll heilsa ehf. ber enga bótaábyrgð (hvort sem hún er innan samninga eða utan, hlutlæg bótaábyrgð eða annars konar ábyrgð) á hvers kyns beinu, óbeinu, tilfallandi, afleiddu, eða sérstöku tjóni sem komið er til eða á einhvern hátt tengt notkun vefsíðunnar. ÁS Snjöll heilsa ehf. ber ekki í neinum tilvikum ábyrgð á tjóni sem rekja má til þess að ekki er hægt að nota vefinn, í skemmri eða lengri tíma.

Félagið ber ekki ábyrgð á röskunum sem kunna að verða á virkni vefsíðunnar vegna óviðráðanlegra atvika (force majeur) svo sem náttúruhamfara, styrjalda eða verkfalla. 

6. gr. Tengdar vefsíður

Á vefsíðunni og innan vefkerfisins kunna að vera tenglar á aðra vefi sem tengjast virkni kerfisins á einhvern hátt. Félagið rekur ekki þessar vefsíður né ræður efni þeirra. Félagið ábyrgist ekki á neinn hátt þær upplýsingar eða það efni sem finna má á þessum vefsíðum, frammistöðu þeirra eða afköst eða nokkuð tjón sem kann að verða fyrir vegna notkunar þeirra.

7. gr. Tölvuvírusar o.fl.

Félagið ábyrgist ekki að vefkerfið eða vefir sem það vísar til s.s með tenglum, séu algjörlega lausir við tölvuvírusa eða annað sem reynst getur skaðlegt tölvum eða hugbúnaði. Notandi ber sjálfur ábyrgð á að fyrirbyggja mögulegt tap sem hlotist getur af slíku með nauðsynlegum vörnum t.d vírusvarnarforritum.

8. gr. Söfnun og vinnsla persónuupplýsinga

Notandi viðurkennir og samþykkir að með því að skrá sig í vefkerfið láti hann félaginu í té þær persónuupplýsingar sem í skráningarforminu felast. Notandi samþykkir jafnframt að félagið hafi eftirlit og haldi skrá yfir notkun notanda á vefsíðunni. Með notkun á vefsíðunni samþykkir notandi jafnframt vinnslu slíkra persónuupplýsinga.

Félagið áskilur sér rétt til að vinna úr gögnum um notkun notanda á vefkerfinu í því skyni að bjóða honum nýja þjónustu, nýjar áskriftarleiðir eða tilboð honum til hagsbóta.

Á meðan samningssamband varir milli notanda og ÁS Snjöll heilsa ehf. skuldbindur félagið sig til að halda utan um og varðveita hvers konar persónuleg gögn og upplýsingar sem verða til við notkun kerfisins og finna má á viðkomandi aðgangi.

Vefsíður og vefkerfi félagsins nýta svokallaðar vafrakökur (e. cookies). Vafrakökur eru nauðsynlegar t.d. til þess að geta auðkennt notendur, t.d. í vefverslun eða í vefkerfi félagsins. Með notkun vefsíðna og vefkerfa félaganna veitir notandi samþykki sitt fyrir notkun vafrakakna.

9. gr. Breytingar á notendareglum og skilmálum

Félagið áskilur sér rétt til að endurskoða og breyta skilmálum þessum hvenær sem er og án fyrirvara. Endurskoðaðir skilmálar munu birtast á vefsíðunni og ber notanda að kynna sér þá reglulega. Notkun vefsíðunnar jafngildir samþykki þeirra skilmála sem í gildi eru hverju sinni.

Breytingar á skilmálum þessum skulu gerðar skriflega. Verði lögum og/eða reglum breytt er varða starfsemi ÁS Snjöll heilsa ehf. skulu skilmálar þessir breytast sjálfkrafa til samræmis við slíkar breytingar, enda hafi þær veruleg áhrif á starfsemi ÁS Snjöll heilsa ehf.

10. gr. Brot á notendareglum og skilmálum

Hafi félagið rökstuddan grun um að notandi hafi brotið gegn skilmálum þessum áskilur félagið sér rétt til þess að grípa til þeirra úrræða sem lög, reglur og skilmálar þessir heimila, þ.m.t loka fyrir aðgang tiltekins netfangs og eða notanda að vefsíðunni, án fyrirvara, tímabundið eða ótímabundið.

11. gr. Aðgangur að svæðum sem vernduð eru með lykilorði

Notendur samkvæmt skilmálum þessum skulu auðkenna sig með netfangi og lykilorði, sem þeim hefur verið úthlutað eða þeir sjálfir valið, við innskráningu inn í vefkerfi félagsins.

Aðgangur að svæðum á vefsíðunni sem vernduð eru með lykilorði er einungis heimill þeim sem fengið hafa úthlutað lykilorði til aðgangs að vefsíðunni, það sama á við um alla notkun aðgangsins. Aðgangur hvers og eins notanda er persónulegur og er notendum með öllu óheimilt að láta öðrum aðilum aðganginn í té eða veita öðrum nokkurs konar heimild til þess að hagnýta sér með hvers konar hætti aðgang þeirra að  og þau gögn og upplýsingar sem þar er að finna. Brjóti notendur gegn þessu banni mun ÁS Snjöll heilsa ehf. gera notanda viðvart og loka fyrir aðgang þeirra notenda, eftir atvikum að undangenginni áminningu, án þess að það hafi áhrif á greiðsluskyldu notanda fyrir aðgang sinn.

Notandi ber fulla ábyrgð á öllum þeim aðgerðum sem framkvæmdar eru með hans aðgangi og lykilorði hvort sem þær eru framkvæmdar af honum sjálfum eða öðrum og hvort sem það er með leyfi hans eða ekki.

Misnotkun á aðgangi eða lykilorði notanda er aldrei á ábyrgð félagsins og ber notanda að halda félaginu skaðlausu af hvers kyns misnotkun.

12. gr. Almennar reglur um notkun

Notendur hafa leyfi til að nýta sér vefkerfið og þá þjónustu sem þar er í boði í samræmi við skilmála þessa.

Notendur fá aðgang að því efni á  sem til boða stendur á hverjum tíma og ekki er háð höfundarréttarvernd af hvers konar tagi.

Notendur öðlast ekki eignarrétt af nokkru tagi, beinan eða óbeinan, yfir því efni sem finna má á vefsíðunni heldur er eingöngu um afnotarétt á viðkomandi efni að ræða. Umfang þessa afnotaréttar fer eftir skilmálum þessum.

Gögn og upplýsingar eru eign félagsins nema annað sé tekið fram eða samkvæmt almennum notendaskilmálum á hverjum tíma. Réttur til notkunar gagna og upplýsinga sem fengnar eru, takmarkast af ákvæðum viðkomandi samnings, notendaskilmálum vefsíðunnar, lögum og stjórnvaldsfyrirmælum. Réttur notenda til notkunar gagna og upplýsinga fellur niður um leið og samningur fellur úr gildi.

Notendum er óheimilt að nota gögn og upplýsingar til hvers konar útgáfu eða endurmiðlunar án skriflegs leyfis félagsins.

Notendum er óheimilt að breyta eða afbaka þær upplýsingar sem finna má á vefsíðunni og/eða að dreifa þeim í breyttri mynd. Notendum er óheimilt að nota efni vefsíðunnar með nokkrum þeim hætti sem falið getur í sér skerðingu á heiðri eða sérkenni höfunda efnisins eða félagsins. Notkun vefkerfisins má ekki undir nokkrum kringumstæðum vera skaðleg rekstri félagsins eða leiða af sér tjón fyrir aðra notendur vefkerfisins. Ekki má nýta vefkerfið í samkeppnistilgangi gegn félaginu.

Fyrir aðra notkun á vefkerfinu en þá sem heimiluð er í skilmálum þessum, þarf sérstakt, skriflegt leyfi félagsins, eiganda höfundaréttar og eftir atvikum annarra sem kunna að eiga höfundarétt að efni vefsíðunnar að hluta til eða í heild.

13.gr Stafrænar lausnir félagsins

a. Healo – Stafræni sjúkraþjálfarinn            
Healo er skráð sem lækningatæki hjá Íslenska og Sænska lyfjaeftirlitinu (MDD, klass I). Persónuupplýsingar meðhöndlast og dulkóðast í samræmi við sjúklingalög ESB (GDPR). Starfsemin er í samræmi við reglur ISO 27001 og 9001 (vottun 2021). Þróun tækninnar er í samræmi við staðla fyrir gæðastjórnun ISO 13485 (MDR klass IIa, vottun 2021).

14. gr. Áskriftir og uppsögn

Gjaldskrá er að finna á vef félagsins.

Áskriftargjaldið er innheimt í byrjun hvers mánaðar með sjálfvirkri skuldfærslu af kreditkorti eða af bankareikningi. Greitt er fyrirfram fyrir hvern byrjaðan mánuð. Gjaldið er innheimt, óháð nýtingu, þar til uppsögn er lögð inn með viðeigandi uppsagnarákvæði.

Takist skuldfærslan fyrir mánaðargjaldinu ekki um mánaðarmót, berst tölvupóstur til viðskiptavinar til áminningar. Áskriftin er engu að síður virk þar til sagt er upp. Ef þrír mánuðir eru ógreiddir lokast aðgangurinn ásamt því að send er önnur tilkynning til viðskiptavinar. Skuldfærsla fyrir fullu mánaðargjaldi er reynd aftur reglulega en ekki er opnað á aðgang aftur fyrr en skuldfærsla tekst.

Félagið áskilur sér rétt til verðbreytinga. Áskriftargjald samninga getur hækkað einu sinni á ári um sem nemur hækkun á vísitölu neysluverðs til verðtryggingar frá síðustu hækkun. Hækki félagið áskriftargjöld umfram það getur áskrifandi sagt upp áskriftinni fyrirvaralaust.

Hægt er að segja upp samningum á „Mínar síður“. Tímabundnum samningum er ekki hægt að segja upp. Ekki er tekið við uppsögn með neinum öðrum hætti. Mánaðargjöld eru ekki endurgreidd, óháð notkun.

UPPLÝSINGAR

SKILMÁLAR

PERSÓNUVERNDARSTEFNA

HEALO@HEALO.IS

KT. 421220-2120

UM HEALO

HVAÐ ER HEALO?

UM OKKUR

HAFÐU SAMBAND

SOCIAL

Facebook Instagram